Sérfræðingar í okkar fagi
MOTTU SPA – fyrsta Woolsafe – vottaða fyrirtækið á Íslandi.
Frá upphafi höfum við gert kröfur um að nota aðeins bestu fáanlegu efni og tæki við hreinsun og réttar aðferðir til að tryggja rétt handbrögð og verndun á mottum og teppum.
Þessi vottun tryggir að við stöndumst alþjóðlegar kröfur varðandi meðhöndlun á efnum og hreinsun.
Öll vinna okkar er unnin á staðnum af sérfræðingum okkar, sem hafa sótt námskeið og sérhæft sig í faginu.
Skref 1. Innritun, auðkenni og skoðun
Það er mikilvægt að vita hvaða efni er í mottunni, hvað hefur lent í hana til ákveða bestu hreinsunaraðferðina og -ferlið. Í öðru lagi fyllum við út forskoðunareyðublað þar sem við getum gert athugasemdir við hvaða vandamál sem eru til staðar, einnig er áhugavert að taka fyrir og eftir myndir til að sjá muninn.
Skref 2. Ryksugun
Með því að nota iðnaðarryksugu ryksugum við gólfmottuna. Þetta fjarlægir upphaflega þurra jarðveginn sem situr nálægt yfirborði mottunnar, henni er síðan snúið við til að ryksuga bakhliðina og mottan er nú tilbúin fyrir næsta ferli.
Skref 3. Fjarlæging á þurrum jarðvegi með teppabankara
Nú er mottan sett með framhliðina niður og sett í gegnum sjálfvirka teppabankarann. Með honum eru óhreindi sem liggja djúpt í þráðunum á mottunni, sandur og önnur þurr óhreinindi fjarlægð. Teppabankarinn slær mjúklega aftan á mottuna og losnar um þurr óhreinindin sem falla
niður í vélina.
Skref 4. Mat á hreinsunaraðferð.
Næsta skref er að meta þörf á hreinsun eftir efni og innihaldi hverrar mottu fyrir sig.
Ef um er að ræða náttúrulega þræði eins og ull eða silki., þá metur sérfræðingurinn hvort þörf sé á þurr eða blauthreinsun. Mottur sem eru úr manngerðum efnum, eins og Viscose / Rayon, sem oft er kallað art silk, bambus silk eða öðrum nöfnum, þarf að meta sérstaklega, þolir illa vatn eftir því hvaða blanda er í mottunni. Mikilvægt er því að velja réttu blönduna og aðferðina til að árangurinn geti orðið sem bestur.
Aðrar mottur hvort sem um er að ræða Nylon, Acrylic, Polypropylene eða Polyester, sem í flestum tilfellum eru ódýrari, þola betur bleytu og sterkari efni. Það því fljótlegra og ódýrara að hreinsa þær.
Þurrkun
Allar mottur eru hengdar upp til þurrkunar á þar til gerðum slám og grindum, þar sem loftflæði leikur um þær í sérhæfðum þurrkklefa skv. stöðlum. Þessi aðferð tryggir að þær þorni sem hraðast og minnkar hættuna á súrnun og myglu.

